RÚV 07:01SmástundSmástund hentar vel fyrir þau allra yngstu, í hverjum þætti lærum við orð, liti, tölur og tónlist. e.
07:06Tikk TakkVandaðir þættir þar sem hugur og skynjun barna eru örvuð á sjónrænan hátt án orða. e.
07:11BurstiBursti er forvitinn og þrjóskur broddgöltur sem býr þar sem litlir hlutir eru stórir.
07:14Vinabær Danna tígursDanni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum. e.
07:26SímonSímon er hress og skemmtileg kanína sem tekst á við alls kyns áskoranir og lærir af mistökum sínum.
07:31Poppý kisuklóFyrir Poppý kisukló er ekkert verkefni of erfitt og ekkert vandamál óleysanlegt. Ímyndaraflið keyrir ævintýri hennar áfram og það er nóg af þeim hjá Poppý og vinum hennar. e.
07:42Hrúturinn HreinnHrúturinn Hreinn og félagar hans á bóndabænum lenda í mörgum skemmtilegum ævintýrum í nýjustu seríunni sinni.
07:49Veistu hvað ég elska þig mikið?Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.
08:00Sögur snjómannsinsHuggulegir þættir þar sem snjómaðurinn les úr sínum uppáhaldsbókum fyrir litlu mýsnar í bókabúðinni.
08:08Tillý og vinirTillý býr í gulu húsi með fimm góðum vinum. Krókódíl, svíni, hænu, fíl og kanínu. Þau sýna og sanna að vináttan er það besta í heimi.
08:19Víkingaprinsessan GuðrúnVíkingaprinsessan Guðrún býr úti í óbyggðum og á í sterku samband við náttúruna og dýrin. e.
08:24Pósturinn PállPáll býr með fjölskyldu sinni í notalegu bresku smáþorpi og lendir í ýmsum póstburðartengdum ævintýrum.
08:39Ronja ræningjadóttirTeiknimyndaþættir um Ronju ræningjadóttur sem byggðir eru á þekktri sögu Astrid Lindgren. Ronja elst upp hjá ræningjum í skógum Skandinavíu. Líf hennar tekur stakkaskiptum þegar hún kynnist strák sem reynist vera sonur andstæðings föður hennar. e.
09:03Sjóræningjarnir í næsta húsiHressir teiknimyndaþættir um ævintýri sjóræningjanna í Daufhöfn og Matthildi vinkonu þeirra. Byggðir á samnefndum bókum í þýðingu Braga Valdimars Skúlasonar. e.
09:15BlæjaBlæja er sex ára hundur sem er stútfull af óstoppanlegri gleði. Allir venjulegir hlutir geta orðið ævintýri hjá Blæju og fjölskyldu hennar. e.
09:22LóaTeiknimyndaþættir um Lóu sem er 12 ára og býr með mömmu sinni í stórborg. Lóu finnst hún ekki lengur vera barn og ekki alveg vera unglingur ennþá og reynir að takast á við allar þær tilfinningar sem vakna þegar unglingsárin eru að hefjast.
09:35ZorroKærulausi unglingurinn Don Diego þjálfar sig í skylmingum þar sem hann ætlar sér að takast á við það mikla óréttlætti sem samlandar hans eru beittir af ógnarstjórninnisem þar ræður ríkjum. Hann verður framúrskarandi skylmingamaður og tekursér nafnið sem mjög margir þekkja, Zorro. e.
09:57Hvernig varð þetta til?Hvernig ætli sumir hlutir sem við erum mjög vön hafi verið fundnir upp? Stórfurðulegu steinaldarmennirnir sýna okkur sínar misheppnuðu tilraunir.
10:00Herra BeanSígildir breskar teiknimyndir um ævintýri hins seinheppna herra Bean.
10:10KastljósLifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir. e.
10:25EyðibýliÖnnur þáttaröð um eyðibýli á Íslandi. Þar sem á árum áður voru reisulegir sveitabæir með iðandi mannlífi standa nú húsin tóm. Rætt er um byggingu bæjanna og talað við fólk sem tengist stöðunum á einn eða annan hátt. Farið er í Fjallssel, Hraun, Langholtspart, Mið-Kárastaði, Núpsstað og Selstaði. Umsjón: Guðni Kolbeinsson. Dagskrárgerð: Björn Emilsson.
11:05SjómannslífSlegist er í för með áhöfnum þriggja fiskiskipa og fylgst með lífi og störfum íslenskra sjómanna við ólíkar aðstæður auk þess sem sagðar eru sögur af lífinu um borð. Myndefnið er tekið upp á árunum 2009-2012. Dagskárgerð annaðist Árni Gunnarsson.
11:25VeislanÍslenskir lífstíls- og matarþættir þar sem þeir Dóri DNA og Gunnar Karl Gíslason, Michelin-kokkur, ferðast um landið, kynnast áhugaverðu fólki og fræðast um menningu, listir, mat og nýsköpun í nýtingu auðlinda. Á leið sinni á hvern áfangastað safna þeir hráefnum sem Gunnar Karl nýtir til matreiðslu í lok hvers þáttar með dyggri aðstoð heimamanna. Leikstjórn: Hannes Þór Arason. Framleiðsla: Gamli Blakkur, Fígúra og Lilja Jóns.
12:00Á líðandi stundu 1986Skemmtiþættir frá árinu 1986. Bein útsending úr sjónvarpssal eða þaðan sem atburðir líðandi stundar eru að gerast hverju sinni. Umsjónarmenn: Ómar Ragnarsson, Agnes Bragadóttir og Sigmundur Ernir Rúnarsson. Stjórn útsendingar og upptöku: Tage Ammendrup.
13:15Grænir fingur 1989-1990Þáttaröð frá árunum 1989-1990 um garða og gróður. Velt fyrir sér tilgangi þess að hafa garð og hvernig óskir eiga að rætast í garðinum. Umsjón: Hafsteinn Hafliðason. Stjórn og kvikmyndun: Baldur Hrafnkell Jónsson.
13:30Barcelona - WolfsburgBein útsending frá úrslitaleik Barcelona og Wolfsburg í Meistaradeild kvenna í fótbolta.
16:20Nýbakaðar mæðurNorskur þáttur um móðurhlutverkið. Mæður ungra barna deila sögum af því hvernig líf þeirra breyttist þegar þær eignuðust sitt fyrsta barn og fjalla um allt sem þær vildu að þær hefðu vitað áður en þær tókust á við þetta krefjandi hlutverk.
16:50Poppkorn 1988Tónlistarþáttur frá 1988 þar sem fjallað er um innlend og erlend dægurlög. Umsjón: Jón Ólafsson, Steingrímur S. Ólafsson, Stefán Hilmarsson og Anna Björk Birgisdóttir. Dagskrárgerð: Ásgrímur Sverrisson.
17:10Augnablik - úr 50 ára sögu sjónvarpsinsLitið um öxl yfir 50 ára sögu sjónvarps og fróðleg og skemmtileg augnablik rifjuð upp með myndefni úr Gullkistunni. Kynnir er Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson.
17:25LandakortValin myndskeið úr Landanum þar sem áhugaverðir staðir eru skoðaðir og merkilegir Íslendingar heimsóttir. Dagskrárgerð: Gísli Einarsson.
17:30Fréttir með táknmálstúlkun 17:56ListaninjaRick föndrar, málar og býr til allskonar skemmtilega hluti. Engar hugmyndir eru of stórar og hann ræðst á þær eins og ninja! e.
18:24OfurhetjuskólinnOfurhetjur þurfa líka að setjast á skólabekk. Þessir óvenjulegu fyrstu bekkingar vekja mikla kátínu í þessum norsku ofurhetjuþáttum. e.
18:40Lag dagsins úr áttunni 18:52LottóLottó-útdráttur vikunnar.
19:00FréttirHelstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
19:25ÍþróttirÍþróttafréttir.
19:40Herra BeanSígildir breskar teiknimyndir um ævintýri hins seinheppna herra Bean.
19:55Sögur - verðlaunahátíð barnannaBein útsending frá skemmtilegustu verðlaunahátíð landsins í Hörpu, þar sem við verðlaunum það sem vel var gert í barnamenningu á Íslandi síðan á seinustu Söguhátíð. Sögur verða í forgrunni enda eru þær allt í kringum okkur. Þær eru í tónlistinni sem við hlustum á, settar á svið á leiksviðum landsins, þær eru til sýninga í kvikmyndahúsum og í sjónvarpinu og að sjálfsögðu í bókunum okkar. Sögur fyrir og eftir krakka verða verðlaunaðar og krakkarnir sjálfir ráða ferðinni, því þeir kjósa það sem þeim fannst bera af á seinasta ári. Kynnar eru Gunnar Hrafn Kristjánsson og Kolbrún María Másdóttir.
21:25Herra BeanSígildir breskar teiknimyndir um ævintýri hins seinheppna herra Bean.
21:40Hetty FeatherSjónvarpsþáttaröð fyrir alla fjölskylduna sem gerist í Lundúnum á Viktoríutímanum. Hetty Feather dvelur enn á Foundling-barnaheimilinu og sem fyrr gengur hún vasklega fram í baráttu sinni gegn harkalegum aðbúnaði barnanna og gegn erkióvininum, hinni illskeyttu og undirförlu Bottomly ráðskonu.
22:15Nikulás litli í sumarfríiFrönsk gamanmynd frá 2014 um drenginn Nikulás sem fer í sumarfrí með fjölskyldu sinni á ströndina. Þar kynnist hann nýjum vinum og lendir í óborganlegum ævintýrum. Leikstjóri: Laurent Tirard. Aðalhlutverk: Mathéo Boisselier, Valérie Lemercier og Kad Merad. e.
23:50VeraBresk sakamálamynd byggð á sögu eftir Ann Cleeves um Veru Stanhope rannsóknarlögreglukonu á Norðymbralandi. Með aðalhlutverk fara Brenda Blethyn og David Leon. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára. e.